Héraðsnefnd Snæfellinga og Hnappdæla

Árið 1989 ákváðu sveitarfélögin í Snæfellsnes og – Hnappadalssýslu að stofna héraðsnefnd samkvæmt 6. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986. Hlaut hún heitið Héraðsnefnd Snæfellinga. Verkefni nefndarinnar var að taka yfir verkefni sýslunefndar svo sem að kjósa fulltrúa í Gróðurverndarnefnd, Jarðanefnd, Náttúruverndarnefnd, fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands og stjórn sjúkrasamlags Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Þá tók nefndin yfir að fjalla um sameiginleg málefni og eftir því sem aðildarsveitarfélögin voru sammála um að fela nefndinni. Til dæmis samgöngumál, almannavarnir og öryggismál, safna- og menningamál, heilbrigðismál, svæðaskipulag og byggðaáætlanir og sameiginleg hátíðarhöld í héraðinu.

Samþykktir fyrir Héraðsnefnd Snæfellinga 2013

Samþykktir um Héraðsnefnd frá árinu 2008