03.05.2024
Þann 6. apríl opnaði Ísól Lilja Róbertsdóttir sýninguna Lifandi hringform í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla.
Ísól ólst upp í Stykkishólmi og var því frá ungum aldri umkringd fallegri náttúru Snæfellsness. Hún hefur alltaf verið heilluð af mynstrum og litum, ekki aðeins í náttúrunni, heldur einnig í geimnum.
04.04.2024
Ísól Lilja Róbertsdóttir heldur myndlistarsýningu með nýjum og nýlegum verkum í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin opnar 6. apríl.
21.03.2024
Nú stendur yfir ljósmyndasýning á svarthvítum listljósmyndum Jónu Þorvaldsdóttur, í Norska Húsinu.
Jóna verður á staðnum með listamannaspjall laugardaginn 30.mars frá kl. 16-18. Léttar veitingar í boði.
16.02.2024
Í tilefni af Óskahelgi í Stykkishólmi opna tvær nýjar sýningar í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla laugardaginn 28. október kl. 14:00.
Anna Sigríður Gunnarsdóttir opnar sýninguna Sjónauki.
Steinnun Gríma opnar sýninguna Mundi.
Anna Sigríður Gunnarsdóttir er fædd í Reykjavík 1960 en hefur verið búsett í Stykkishólmi síðan 1982. Hún lærði mótun í leir og tengd efni í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
12.09.2023
Ný grunnsýning verður opnuð laugardaginn 23. september kl. 14:30 í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin leysir af hólmi fyrri grunnsýningu safnsins sem staðið hefur yfir á miðhæð hússins síðan árið 2001.
12.09.2023
Laugardaginn 23. september opnar í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla sýningin Solander 250:Bréf frá Íslandi.
Sýningin hefur ferðast um landið en hún mun teygja anga sína um tólf listasöfn og sýningarsali um allt land frá haustinu 2022 og enda í Svíþjóð 2024. Sýningin er samstarfsverkefni félagsins Íslensk grafík og sænska sendiráðsins á Íslandi.
05.07.2023
Sýningin Glerverk með Snæfellsnes í huga eftir Hrafnhildi Ágústdóttur (Rabbý) opnar í Norska húsinu - Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla, laugardaginn 8. júlí kl. 14:00.
Á sýningunni eru 36 fuglamyndir, aðallega af farfuglum, sem eru algengir á Snæfellsnesi. Sex myndir eru í hverju setti, lóur, kríur, tjaldar, maríuerlur, hrafnar og sex mismunandi vaðfuglar, spói,
29.06.2023
Þjóðbúningahátíð Byggðasafns Snæfellina og Hnappdæla fer fram 1. júlí
07.06.2023
Þriðjudaginn 6. júní var formlega stofnaður Safnaklasi Vesturlands, fór stofnfundurinn fram í Reykholti
Þar skrifaði safnstjóri Byggðasas Snæfellinga og Hnappdæla undir stofnskrá hans, ásamt öðrum söfnum, sýningum og setrum á Vesturlandi.
18.04.2023
Á sumardaginn fyrsta mun Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla standa fyrir fuglabingói fyrir börn, í tilefni þess að nú stendur yfir ljósmyndasýningin Fuglar á Snæfellsnesi eftir Daníel Bergmann.
Einnig verður boðið upp á ratleik sem hefst frá Norska húsinu.
Bingóið og ratleikurinn hefst, kl. 13:00. T
ilvalið að hlusta eftir fuglahljóðum þangað til. Að loknu bingó og ratleik verður boðið upp á grillaður pylsur á torginu við Norska húsið.
Fögnum sumrinu með útileikjum. Spáin er góð!
Hlökkum til að sjá ykkur.
Safnið verður opið frá kl. 13-16.
Sumarfjör frá kl. 13-15.